|
| Gunnlaugur Scheving fæddist
í Reykjavík árið 1904, en ólst upp
á Seyðisfirði. Hann flutti til Reykjavíkur
árið 1921 og fékk tilsögn í teikningu
hjá Guðmundi Thorsteinssyni (Muggi) og einnig hjá
Einari Jónssyni myndhöggvara. Hann fór utan til
frekara náms til Danmerkur og nam hjá Viggo Brants
á árunum 1926 - 29 og sliðustu þrjú
árin einnig við Konunglega listaskólann í
Kaupmannahöfn og eftir það helgaði hann sig málaralistinni.
Viðfangsefnið þar sem maðurinn er við vinnu
sína, hvort sem það er bóndinn, járnsmiðurinn
í smiðjunni eða sjómaðurinn varð honum
alla tíð mjög hugleikið. Hann vann með olíuliti,
vatnsliti og gerði myndskreytingar og eru mörg verka hans
í opinberri eigu. Gunnlaugur lést árið1972. |
|
|