Guðjón Samúelsson
Til baka

Guðjón Samúelsson fæddist árið 1887. Hann var fyrstur Íslendinga til að ljúka námi í byggingarlist 1919. Guðjón gegndi embætti húsameistara ríkisins um nokkurt skeið og hannaði fjölda bygginga og hafði mikil áhrif á byggingarlist síns tíma.

Hann varð fyrir áhrifum frá ýmsum stefnum í hönnun bygginga og má þar nefna nýklassík, fúnkisstíll og þjóðleg rómantík, einnig leitaði hann fanga í íslenskri náttúru.

Þekktustu byggingar Guðjóns eru:
Kristskirkja í Landakoti (1925 - 29),
Landspítalinn (1925 - 30),
Þjóðleikhúsið (1928 - 1950),
Háskóli Íslands (1936 - 1940),
Hallgrímskirkja (1945 - 1986),
Akureyrarkirkja ( 1940 - 1941),
Hótel Borg ( 1928 - 1930),
hús Eimskipafélags Íslands ( 1919 - 1921) svo eitthvað sé nefnt.

Guðjón lést árið 1950.

Síðast uppfært 2-06-2001
© Aðalbjörg María Ólafsdóttir