Finnur Jónsson
Til baka

Finnur Jónsson fæddist í Strýtu í Hamarsfirði árið 1892. Árið 1915 flutti hann til Reykjavíkur og hóf gullsmíðanám við Iðnskólann hjá Jónatani Jónssyni og sótti kvöldnám í teikningu hjá Þórarni B. Þorlákssyni listmálara, sem þá var skólastjóri Iðnskólans. einnig sótti hann tilsögn hjá bróður sínum Ríkharði Jónssyni myndskera til 1916 en þá mun hann hafa verið orðinn staðráðinn að leggja myndlist fyrir sig en taldi gott að hafa gullsmíðina í bakhöndinni.

Hann heldur til Kaupmannahafnar og innritast í einkaskóla Viggós Brandts sem var dagskóli til húsa í höggmyndadeild Statens Museum for Kunst, og á sama tíma sækir hann kvöldskóla og lærir perspective sem var undirbúningsnám fyrir þá sem ætluðu í Listaakademíuna.. Í Kaupmannahöfn sækir hann listasöfn og sér m.a. myndir eftir Picasso, Matisse og Munch.

Finnur fer síðan til náms til Þýskalands - Berlínar og svo Dresden, og var kennari hans Oskar Kokoschka - einn helsti expressionisti þeirra tíma. Einnig kynntist hann m.a. Kurt Switters. Þar var hann til 1924.

Um sumarið 1925 flutti Finnur heim til Íslands og hélt sýningu á verkum sínum í húsi Nathans & Olsens, í Café Rosenberg þá um veturinn. Þar sýnir hann 50 - 60 verk, abstrakt og expressioniskar myndir og landsagsmyndir. Þessi sýning vakti mikla athygli og markar tímamót í íslenskri listasögu. á sýningunni voru olíumálverk, klippimyndir og pennamyndir.

Sýningin fékk mikil viðbrögð og var ýmist gagnrýnd eða lofuð í blöðum. Skilningur almennings virtist ekki mikill á framúrstefnuverkum s.s. abstrakt og expressionisma og cubisma.

Finnur seldi nokkrar myndir á þessari sýningu en enga af þeim sem þessara framúrstefnuáhrifa gætti.

Eftir þessa sýningu er sem Finnur aðlagi listsköpun sína að markaðnum, e.t.v. hefur honum fundist að ekki væri tímabært að halda áfram á sömu braut og fólkið ekki tilbúið fyrir slíkar nýjungar. Finnur hafði fullan hug á að helga sig myndlist eingöngu og þurfti því að framfleyta sér á sölu mynda.

Síðast uppfært 23-05-2001
© Aðalbjörg María Ólafsdóttir