|
Fyrsta stig Cubismans
var að kryfja fyrirmyndina. Hún var síðan
brotin niður í grunnform og raðað saman aftur
í þeim tilgangi að mynda forsterka uppbyggingu.
Dubisminn afneitaði beinni eftirlíkingu en er þó
hlutbundinn og snerist allur um vandamál hlutar og forms.
Menn máluðu hlutinn eins
og þeir hugsuðu sér hann en ekki eins og hann
sýndist vera. Af því leiddi sérkenni
Cubismans, að horfa á hlutina frá tveimur sjónarhornum
samtímis.
Cubistar byltu formunum en þeir
létu sér nægja daufa liti.
Einn af upphafsmönnum Cubismans
var Pablo
Picasso. Engum hafði áður komið til hugar
að mála á þennan hátt. Hann gerði
m.a. myndina "Ungfrúrnar frá Avignon",
sem markar upphaf Cubismans og er meðal frægustu málverka
í listasögunni.
|