Ásmundur Sveinsson
Til baka
Ásmundur Sveinsson fæddist á Kolsstöðum í Miðdölum árið 1893.
Hann lærði tréskurð hjá Ríkharði Jónssyni og lauk sveinsprófi vorið 1919. Hann lærði höggmyndalist og hélt hann til Kaupmannahafnar í undirbúningsnám fyrir höggmyndalist og nam síðar nokkur ár í Stokkhólmi hjá Carli Milles.
Ásmundur er mikilsmetinn listamaður og gerði mörg myndverk. Myndir hans eru mjög kröftugar í formi og þola stækkun vel. Hann varð fyrir áhrifum frá ýmsum listastefnum og má sjá það í mynverkum hans s.s. forngrískrar listar, kúbismanum og eftir það tók hann að einfalda formin.
Eftir Ásmund liggja mörg stórkostleg listaverk eins og "Móðir og jörð", "Helreiðin" og fleiri myndverk og hafa mörg þeirra verið stækkuð upp og standa á opinberum stöðum.
Hann lést árið 1982.

Síðast uppfært 23-05-2001
© Aðalbjörg María Ólafsdóttir