|
Ásgrímur
Jónsson fæddist á bænum Rútsstaðahjáleigu
í Flóa árið 1876.
Hann undi sér oft við ýmis konar myndgerð
sem barn og var það ekki fyrr en hann kom til Kaupmannahafnar
sem hann kynntist málaralist að nokkru ráði.Þar
vann hann á verkstæði þar sem máluð
voru húsgögn og um leið stundaði hann undirbúningsnám
í teikningu. Hann hóf síðan nám
í Konunglega listaskólanum í Kaupmannahöfn
árið 1899.
Ásgrímur kom til Íslands
alkominn árið 1909 og tók þá til
við að mála. Myndefni hans var aðallega landslag,
sögulegir atburðir og myndir við ýmsar þjóðsögur.
Hann fór um landið og málaði og var mikið
í Þjórsárdal og Húsafelli í
þeim tilgangi. Eftir Ásgrím liggja margar
myndir unnar bæði með olíulitum og vatnslitum
sem bera vitni næmu auga fyrir litameðferð, sem
og samspili birtu og skugga.
Hann lést árið 1982.
|