Nemendur koma með gítar
á námskeiðið.
Farið verður yfir
og kynntir helstu hlutar hans, hvað þeir heita og
til hvers þeir eru.
Nemendur þjálfa
fingurna og finna hve fast þarf að þrýsta
á strengina til að þeir hljómi fallega.
Það þarf að æfa þetta vel og
búast má við að fingurnir
verði sárir fyrst til að byrja með en smám
saman myndast sigg á fingurgómana og lífið
verður bærilegra.
Æfum saman hljóma
og sláum í taktinn hvert grip fyrir sig og æfum
okkur að skipta á milli gripa.
Verum dugleg að æfa
okkur heima á milli tíma og syngjum gjarnan með.
Í lok námskeiðsins
ættuð þið að geta annast undirleik í
einföldum lögum og munið að æfa og æfa
og æfa. Gangi ykkur vel og góða skemmtun.
Efst
á síðu