|
| Kynning | Verkefni | Bjargir | Munsturgerð | Efni og áhöld | Ferli | Fleiri mynsturgerðir | Mat | Niðurstaða |
Námskeið fyrir byrjendur. Markmiðið er að þátttakendur: - læri undirstöðuatriði
í bútasaumi Á þessu
námskeiði ætlum við að kynnast bútasaumi,
bæði í sögulegu samhengi og forsendur saumaskaparins.
Nemendur fá nokkra innsýn í það hvernig
þessi aðferð þróaðist og hvert hráefni
var sótt. Þessi saumaskapur á sér sögulegar
forsendur og lifir góðu lífi enn þann dag í
dag því hann höfðar til fólks á öllum
aldri hvar sem er í heiminum - á sér engin landamæri
en mótast á mismunandi hátt eftir búsetu,
viðhorfum og mörgum öðrum atriðum. Þessu námskeiði er fyrst og fremst ætlað að koma fólki af stað við vinnuna og stefnt að því að þeir fái þann grunn sem til þarf til að geta síðan haldið áfram að vinna hliðstæð verkefni eftir efni, ástæðum og áhuga. Einnig gæti þetta námskeið verið undanfari frekari kennslu í bútasaumi innan skóla eða utan. Hér verður reynt að setja efnið upp á aðgnengilegan hátt þannig að þeir sem vilja geti unnið eftir því skref fyrir skref og haft af því stuðning við vinnuna. Rétt er að geta þess að hér er ekki um tæmandi umfjöllun að ræða um svo viðamikið viðfangsefni sem bútasaumur er, heldur aðeins brot af toppi ísjakans í allri þeirri umræðu, bókum og tímaritum sem til er, því þetta er alþýðulist í stöðugri þróun - með vísan til fortíðar.
Viðfangsefnið getur verið mynd, veggteppi, rúmteppi og margt fleira og er það þá val hvers og eins að ráða fram úr því og hafa sjálfir val hvað varðar efni og uppröðun ferninganna. Hér ráða efni, aðstæður og hugmyndaflug ferðinni. Þátttakandinn vinnur verkefnið og nýtur við það handleiðslu kennarans á námskeiðinu.
Ýmsar handbækur eru til um þetta viðfangsefni og eru þær til í hannyrðaverslunum og sérverslunum. Ef frekari áhugi er fyrir hendi er létt verk að gerast áskrifand að fagtímaritum. Slóðir á Netinu: America's
largest quilt shop and favorite quilting supplies catalog. Ýmis
munstur til að reyna litasamsetningar Hvernig
á að sauma hin ýmsu munstur Bútasaumur
og jólin - Jólasveinasaga Bútasaumur
með börnum - hugmyndir fyrir foreldra og kennara Bútasaumur
og stærðfræði
Frá upphafi hefur
maðurinn haft vissa þörf fyrir að skapa. Hann hefur
gert sér klæði og áhöld úr því
sem hann hefur haft innan seilingar eða orðið sér úti
um hráefni og unnið síðan úr því
það sem hann hefur vanhagað um hverju sinni. Maðurinn
bætir á sig klæðum í kulda eða fækkar
fötum í hita. Hann breiðir ofan á sig ábreiðu
sér til skjóls og skreytir hús sitt með myndum.
Ein af þeim aðferðum sem notaðar hafa verið í
aldaraðir til að búa til slíka nytjahluti til heimilisins
er bútasaumur og er það sú aðferð sem
er hér til umfjöllunar. Teppi eða myndir eru saumaðar
saman úr efnisræmum eða bútum eftir mismunandi
munstrum. Frumherjarnir voru yfirleitt efnalitlir og þurftu að
nýta það sem til var. Eiginleikar munstursins gerðu
það að verkum að hægt var að nýta svo
til alla efnisafganga og gömul föt. Með þessari aðferð
gerði fólk sér ábreiður og lífgaði
upp á frumstæð híbýli sín og var
hagnýtt gildi þessara verka ótvírætt.
Það hefur líka eflaust verið hvíld frá
amstri dagsins að setjast niður við arineldinn og sauma fyrir
sig og sína.
Hvað þarft
þú að hafa?
Nú þegar þú hefur séð mismunandi útfærslur og möguleika í uppröðun ferninganna getur þú farið að skipuleggja þitt verkefni. Hvernig efni ætlar þú að velja - röndótt, köflótt, rósótt, einlitt? Í hvaða litum á það er vera - hvernig raðast þessir mismunandi litir saman og hvernig raðast ferningarnir sjálfir saman í eina heild - teppi/mynd? Þær eru margar spurningarnar sem þarf að svara. Efnisvalið mun hafa mikil áhrif á útlit teppisins í heild, hvort það er nýtískulegt, gamaldags, villt eða hefur rólegt yfirbragð. Dökki helmengur bjálkakofamunstursins er oft hafður aðeins stærri en sá ljósi til að jafna þau áhrif á augað að dökkir hlutir virki minni en ljósir - þá verða fletirnir jafn stórir að sjá. Það þarf að vera búið að þvo allt efni sem notað er í bútasaum þannig að það hafi þegar látið frá sér umfram lit, hlaupið og gengið til (það sem á annað borð gerir það) svo sá mismunur og litur eigi ekki eftir að aflaga teppið við fyrsta þvott. Hönnun
Verkefnið er skoðað og metið sameiginlega af nemandanum og kennara hans og reynt að gera sér grein fyrir því hvað tókst og hvað hefði mátt betur fara. Þar sem hér er um námskeið fullorðinna að ræða og ekki er gefið fyrir vinnu verkefnisins í einkununn eða með öðru matstæki, er verkefnið sem slíkt ekki metið frekar.
Það er von mín að þessi umfjöllun muni verða þeim til gagns og fróðleiks sem hyggja á bútasaum í framtíðinni fyrir sig og sína. Ef svo verður, hefur hún náð tilgangi sínum. Möguleikarnir eru óendanlegir, ekki aðeins sem tómstundir í heimahúsum heldur ekki síður í félagsstarfsemi. Ef skreyta á félagshús eða vinna að fjáröflun fyrir einhverja starfsemi er bútasaumur kjörið samvinnuverkefni. Hægt væri t.d. að safna saman gömlum skyrtum og sauma úr þeim teppi í tískutímabilum eða litaröð. Einnig er hægt að vinna teppi þar sem viðfangsefnið væri spariföt og hversdagsföt. Árstíðirnar eru kjörið viðfangsefni. Karlmenn komi með gömlu hálsbindin sín og þeim síðan raðað í munstur t.d. eftir tískutímabilum eða hljómlistartímabilum, og fleira mætti telja. Þannig eru möguleikar og verkefni óþrjótandi og kostnaður getur verið í algjöru lágmarki en kostnaðurinn er alltaf mikið mál í félagsstafi. Slík verkefni geta verið félagslega þroskandi og komið ótrúlega mörgum hugmyndum í teppi auk þess að veita fólki yndi og ánægju við samsetninguna. Mörg dæmi eru um slík verkefni en einn trúflokkur - Amish-fólkið, sker sig þó úr í verkefnum sínum hvað varðar litaval og munstur. Þau halda sig við einfaldleikann eins og í lifnaðarháttum sínum, nota dökka liti og afmarka gjarnan teppin með heitum dökkum litum. Þegar þau sauma bjálkakofamunstur hafa þau gjarna dekkri helming ferningsins einlitann og hinn í mismunandi litum. Þau nota ekki áprentuð efni heldur ofin, köflótt eða röndótt. Ég vona að þið hafið haft gagn og gaman af því að vinna þetta verkefni og séuð einhvers vísari um bútasaum og einkenni hans. Gangi ykkur vel við saumaskapinn!
Síðastast
uppfært
01.06.2001
|