
Efni
og áhöld
Efni: Það
er hægt að nota hvaða efni sem er en best er að nota
100% bómullarefni því þau koma í ótal
litum og er gott að þvo og strauja.
Vattefni til að hafa á milli yfirborðs og bakefnis
en það er selt í ýmsum gerðum, bómullar
og póyester - þykkt eða þunnt, með miklu
lofti eða litlu. Það er mælt í grömmum
t.d. 80 gr. eða 130 gr. Valið fer eftir því hvað
hentar hverju sinni.
Tvinni. Bómullartvinni í lit sem fer vel við
efnið. Einnig er gott að kaupa sérstakan tvinna til að
stinga með hvort sem handstungið er eða notaðar saumavélar.
Hnífur sem getur auðveldlega skorið í gegn
um mörg lög af efnum. Hann er mun betri en skæri þar
sem skurðurinn verður mun nákvæmari og beinni.
Það eru til mismunandi stærðir og gerðir hnífa
frá mismunandi framleiðendum. Lítill hnífur
hentar vel við venjulegan heimilissaum. Hægt er að skipta
um blöð í hnífum - best að skipta þegar
hann gættir að bíta vel.
Skæri eru einnig fullgilt verkfæri og er þá
klippt eftir þræði. Ef skæri eru notuð þarf
að sjálfsögðu ekki að hafa mottu og hníf
til að skera efnið.
Reglustika, annað hvort með tommumáli eða
sentimetrum, eftir því hvað þér finnst
betra að nota. Þær eru til í börgum stærðum
og er 60 X 15 mjög góð stærð. Einnig er hægt
að fá þríhyrningastikur og fleiri gerðir.
Beinu stikurnar kuga mjög vel í flest og þær
eru einnig línumerktar með 45% og 60% skálínum.
Skurðarmotta er algjör nauðsyn að hafa ef hnífur
er notaður. Þær eru merktar með línum og
er stærðin 45 X 60 cm. mjög góð.
Straujárn og strauborð eru til á flestum heimilum.
Það eru skiptar skoðanir á því hvort
betra sé að nota gufu - eða venjulegt straujárn
en ef gufa er notuð straujast oftast betur en passa þarf að
aflaga ekki efnið.
Fingurbjörg er gott að nota við að quilta teppið.
Saumahringur. Það er aðuvelt mál að
quilta teppið/myndina í saumahring ef þræðingin
er góð. Hringurinn tryggir að öll þrjú
lögin haldist slétt saman.
Til
baka

Síðast uppfært 25.03.2001
© Aðalbjörg María Ólafsdóttir