Abstraktlist er ein
af listastefnunum sem þróaðist í byrjun 20.
aldarinnar í Evrópu og barst hingað til lands með
námsmönnum sem sigldu utan til náms á byrjunaráratugum
aldarinnar. Þessi þróun í myndlist þótti
mörgum vera furðulegt fyrirbæri og eiga lítið
skilt við list, en abstraktlistin er núna viðurkennt
myndform og er listastefna sem er mikils metin af listaheiminum.
Verkefnið er ætlað
unglingadeildum grunnskóla (8. - 10. bekkjum) og er unnið
í myndlistatímum - bóklegi hlutinn á tölvur
og verklegi hlutinn er að mála myndverk.
Til
baka
Verkefni:
Kynntu þér
upphaf og þróun abstraktlistar á Íslandi
á 20. öldinni og gerðu um það stutta
umfjöllun 2-3 bls.
- Reyndu að sjá upp úr hverju hún spannst.
- Hver er hugmyndafræðin á bak við stefnuna?
- Hverjir eru frumkvöðlar þessarar listastefnu á
Íslandi, nám þeirra og áhrifavaldar?
- Helstu myndir eftir þá
Málaðu eina
abstraktmynd í stærðinni A3
- Lýstu hugmyndinni að baki myndinni sem þú
málaðir - formi og litum.
- Þetta er einstaklingsverkefni og ætlast er til sjálfstæðra
vinnubragða við öflun heimilda og verklegrar vinnu.
Skil verkefna.
- Bóklegum hluta verkefnisins skila nemendur í formi vefsíðu
- Verklegum hluta verkefnisins - máluð myndi - skila nemendur
með kynningu í myndlistatíma.
Til
baka
Bjargir:
Björn Th. Björnsson.
1973. Íslensk myndlist á 19. og 20. öld. Drög
að sögulegu yfirliti. II bindi. Helgafell. Reykjavík.
Gombrich E.H. 1997. Saga
listarinnar. Halldór Björn Runólfsson þýddi.
Mál og menning. Reykjavík.
Pischel, Gina og Þorsteinn
Thorarensen. 1979. Listasaga Fjölva. Nýöld -
Nútími. III.bindi. Helgafell. Reykjavík.
Smith, Edward Lucie. 1979.
Nútíma Listasaga. Frá tjáafstæðu
til rosaraunsæis. Þorsteinn Thorarensen þýddi.
Fjölvaútgáfan. Reykjavík.
Leiðbeiningar
um vefsíðugerð í Netscape Composer
eftir Guðrúnu Jónsdóttur
Til
baka
Til
athugunar við vefsíðugerð:
· Hugsaðu vel
um uppsetningu síðunnar
· Hafðu ekki margar, stórar myndir á síðunni
- þá er hún lengi að opnast.
· Hafðu textann stuttan og skýran en segðu samt
allt sem þarf.
· Hafðu ekki dónaleg og særandi orð á
síðunni þinni. Ef þess er ekki gætt áskilur
kennari sér rétt til að setja ekki viðkomandi
síðu in á vefinn.
Til
baka

Ferli:
Leitaðu upplýsinga
um abstraktmyndlist á Íslandi á Netinu og í
öðrum fáanlegum heimildum.
Skrifaðu umfjöllun um þetta - 2 - 3 bls. - með umfjöllun
um stefnuna, listamennina og verk þeirra og skilaðu inn sem
vefsíðu.
Þegar þú hefur kynnt þér stefnuna og
einkenni hennar gerir þú eitt myndverk - A3
Verkefnið á að sýna þróun frá
skissu til fullgerðrar myndar.
Að loknu verkefninu kynnir þú öðrum nemendum
myndina og lýsir hugmyndum að baki henni í formi og
lit og segir í stuttu máli frá áhrifum þínum
af abstraktlistinni.
Til
baka
Mat:
Metin verða: Ástundun,
vinnubrögð, verkefni (ritgerð og myndverk), kynning og
framsetning við verkefnaskil.
Til
baka
Niðurstaða:
Við vinnu þessa
verkefnis átt þú að hafa fengið nokkra innsýn
í abstrakt myndlist og orði nokkurs vísari um þróun
stefnunnar, hugmyndafræði hennar, einstaka listamenn og myndverk
unnin í þessri stefnu.
Þessi vinna verður þér vonandi hvati til frekari
kynna á myndlist almennt
Til
baka

|